24.04.1929
Neðri deild: 53. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1767 í C-deild Alþingistíðinda. (3322)

120. mál, refarækt

Jón A. Jónsson:

Það er eins og hv. þm. Borgf. viti ekki, að það er mikil samkepni um kaup á refum til lógunar hjer innanlands vegna skinnanna, þegar fram á vetur liður. Þessi samkepni hefir altaf verið og verður framvegis, og það eru þessi kaup, sem haldið hafa verðinu uppi um 20 ára skeið. Hitt er ekki til annars en að stuðla að sviksamlegri verslun norskra flökkumanna, ef farið verður að till. hv. þm. Borgf. í þessu máli.