05.04.1929
Efri deild: 37. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1865 í C-deild Alþingistíðinda. (3442)

71. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.

Jón Þorláksson:

Þegar þetta frv. hefir verið til umr. og atkv. á undanförnum þingum, hefi jeg ekki greitt atkv. með því, vegna þess að mjer hefir þótt of langt gengið í því að leggja kvaðir á eignir manna. Vil jeg um rök mín fyrir því vísa til Alþt. síðustu tveggja ára. Aðstaða mín til frv. er óbreytt frá því, sem þá var. Greiði því ekki atkv. með frv.