10.04.1929
Efri deild: 41. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1940 í C-deild Alþingistíðinda. (3500)

118. mál, sala á landi Hvanneyrar í Siglufirði

Flm. (Jón Þorláksson):

Að því er snertir ástæður fyrir þessu frv. get jeg látið mjer nægja að vísa til grg. frv. og svo þess, sem fram kom í þessari hv. deild við umr. um samskonar heimild til að selja Neskaupstað hluta af landi prestssetursins þar. Óska jeg þess aðeins, að frv. fái að ganga til 2. umr., og því verði að umr. lokinni vísað til allshh.