03.04.1929
Neðri deild: 35. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í D-deild Alþingistíðinda. (3587)
41. mál, aukin landhelgisgæsla
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Það er sannarlega ekkert gaman, og hv. flm. brtt. má ekki segja, að hann geri sjer það til gamans, að neyða menn til þess að leggjast á móti jafnmiklu nauðsynjamáli og hjer liggur fyrir, að hans dómi sjálfs. En hann má ekki skilja afstöðu n. til till. svo, að við álítum, að ekki megi auka gæsluna við Breiðafjörð, heldur hitt, að við getum ekki fallist á brtt. í því formi, sem hún er fram flutt í. Okkur virðist það skrítið að koma með till. um breyt. á gæslu, sem um alllangt áraskeið hefir verið haldið uppi og aldrei yfir kvartað svo jeg viti. Ríkisstj. hefir haldið þessari gæslu uppi á líkan hátt og annarsstaðar, þar sem sjerstaklega hefir verið ástatt. Jeg get því ekki skilið það, að þörfin sje svo brýn einmitt nú, að hnýta þurfi slíkri till. aftan í hina upphaflegu till. um aukna gæslu á Faxaflóa. Gæslan fyrir Vestfjörðum er orðin að „praksis“. Það er engu líkara en að slík till. sje einungis flutt til gamans, eins og líka hv. flm. gaf í skyn. Það er sjálfsagt engin þörf þess að taka sjerstaka afstöðu til slíkrar till. sem þessarar. Hver myndi svo sem verða því mótfallinn, að landhelgisgæslan sje aukin fyrir Vestfjörðum sem annarsstaðar? En það væri efalaust eðlilegra af hv. þm. Barð., ef hann annars vill hrófla við þessari gæslu, sem orðin er að venju og þegjandi samkomulagi, að flytja sjálfstæða og sjerstaka till. um það, en ekki að hnýta henni aftan í aðra till., einungis til þess að stofna málinu í heild í beinan háska. Ályktun n. um Faxaflóagæsluna stendur hinsvegar óhreyfð, og sjútvn. getur ekki fallist á þessa till. sem brtt. við hina upphaflegu. Hinsvegar get jeg persónulega sagt það, að ef þingið er ákveðið í að auka gæsluna til muna, þá mun jeg síst leggjast á móti sjerstakri till. um þetta efni frá hv. þm. Barð. En eins og sakir standa, get jeg ekki ljeð henni fylgi mitt, sjerstaklega að því athuguðu, hvernig hún er fram flutt og hvaða aðferð hv. flm. notar til þess að koma henni í gegn. Það er ekki ósvipað athæfi því, að ef einhver einstök brtt. kæmi fram við vegalögin, að þá drifi að samstundis svo margar breyt., að ekki væri hægt að sinna þeim. Það mætti efalaust koma fram með tíu slíkar brtt. sem þessa með sama rjetti. (HK: Nei). Jú, það eru sjálfsagt yfir tíu útvegssvæði, sem gætu með sama rjetti krafist aukinnar gæslu. En þessi aðferð hv. flm., að ætla að hnýta þessari till. sinni aftan í Faxaflóatillöguna, er að áliti n. með öllu ófær, og með tilliti til þess leggjum við til, að brtt. hv. þm. Barð. verði feld.