15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (3700)

131. mál, hagskýrslur

Flm. (Halldór Stefánsson):

Það er síður en svo, að jeg hafi á móti brtt. hv. þm. N.-Ísf., og tel jeg það vera til bóta að fá sem fyllstar upplýsingar um alla þessa hluti, en að jeg tók þetta ekki með, stafar af því, að það koma þó nokkrar upplýsingar um hag sýslusjóða fyrir almenningssjónir í Hagtíðindum. En þar er ekki getið um ábyrgðir. En þetta getur gefið mikilsverðan fróðleik, og get jeg mælt hið besta með brtt.