11.05.1929
Efri deild: 66. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (3801)

137. mál, rannsókn brúarstæðis á Lagarfljóti

Fjmrh. (Einar Árnason):

Jeg geri ráð fyrir, að óhætt sje að búast við, að stj. taki vel í þetta og láti fremja þær viðbótarrannsóknir, er þurfa þykir. Það kemur ekki fram í brjefi því, er jeg las upp áðan, en jeg sje það á uppdrættinum, að botninn hefir ekki verið rannsakaður. Þess hefir ef til vill ekki verið talin þörf, því ekki er gert ráð fyrir stöplum í ánni.