15.03.1929
Neðri deild: 23. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í D-deild Alþingistíðinda. (3838)

34. mál, rannsókn á rekstri togaraútgerðarinnar

Ólafur Thors:

Jeg vil leyfa mjer að bera fram þá till., að málinu verði vísað til allshn., ef það á annað borð fer til nefndar. Frv. um vinnudóm. liggur fyrir þeirri n. og færi vel á, að bæði þessi mál færu til sömu n., svo að þau gætu komið á dagskrá saman. Hitt mundi einungis lengja umr., ef þau kæmu á dagskrá sitt í hvoru lagi.