06.04.1929
Neðri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í B-deild Alþingistíðinda. (406)
106. mál, kynbætur hesta
Pjetur Ottesen:
Með þessu frv., sem hjer liggur fyrir, er farið fram á það, að færa nokkuð fram það tímatakmark, sem ákveður, hvenær búið eigi að vera að gelda alla hesta. Við hv. þm. Mýr. flytjum brtt. við frv. þess efnis, að um þetta atriði skuli alt sitja við það, sem nú er. Að því liggja tvær ástæður. önnur ástæðan er sú, að í útbeitarsveitum mundi ákvæði 1. gr. frv. verða til mikils kostnaðarauka fyrir bændur, því að ef hestar eru geltir 20. apríl, þá verður að sjálfsögðu að taka þá á gjöf, og að því mundi verða allmikill kostnaður. Hin ástæðan er sú, að það er algengt með 2-vetra hesta, að þeir eru ekki orðnir kynþroska 14. maí, þegar á að gelda þá, og, ekki myndi kveða minna að þessu, ef tímatakmarkið væri fært fram til 20. apríl. Það má ganga út frá því vísu, að þó að þetta sitji við það, sem nú er, þá muni það ekki valda neinu tjóni eða hefta kynbætur að neinu leyti.
Það hefði auðvitað mátt koma breytingu okkar hv. þm. Mýr. að með því móti að fella 1. gr. frv., en það er í mörgum tilfellum litið svo á, að ef 1. gr. fellur, þá sje þar með alt frv. fallið. Nú eru 1. og 2. gr. þessa frv. algerlega óskyldar, og þess vegna fórum við þá leiðina, að bera fram brtt. um það, að 1. gr. skuli falla niður.