06.04.1929
Neðri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í B-deild Alþingistíðinda. (407)
106. mál, kynbætur hesta
Halldór Stefánsson:
Hv. flm. brtt. færði það fram sem aðalástæðu með henni, að núv. ákvæði í 1. kæmi ekki í bága við markmið þeirra, kynbótastarfsemina. En þetta er alveg fráleitt. Jeg vil t. d. geta þess, að hrossaræktarfjelag á Fljótdalshjeraði hefir skrifað þm. Múlasýslna og óskað eftir breyting á l. í sömu átt og frv. fer, og þó reyndar víðtækari. En við ætlum samt að sætta okkur við þetta frv. Ef ákvæði laganna verða óbreytt áfram, er ekki trygging fyrir því, að þau komi að fullu liði. Og þó nokkur kostnaðarauki kunni að hljótast af breytingunni, þá verður hann að víkja fyrir aðalþörfinni.