20.03.1929
Neðri deild: 27. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (539)

3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða

Frsm. meiri hl. (Hjeðinn Valdimarsson):

Jeg hafði búist við því, að hv. form. allshn. myndi skýra frá því, að brtt. þær, sem fram eru komnar, hafa verið til umræðu í n. En niðurstaðan af því varð sú, að einhver nefndarmanna reyndist að vera með hverri brtt., en n. öll varð ekki sammála um neina þeirra.