20.03.1929
Neðri deild: 27. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í B-deild Alþingistíðinda. (552)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Frsm. minni hl. (Magnús Guðmundsson):
Mjer heyrist brtt. þessi vera í samræmi við það, sem jeg stakk upp á við 2. umr., en þó finst mjer vanta í hana ákvæði um það, að bæjarstjóra, sem kosnir eru nú, megi ekki kjósa til lengri tíma en til næstu bæjarstjórnarkosninga. Lögin mæla svo fyrir.