30.04.1929
Efri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í B-deild Alþingistíðinda. (585)
3. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Páll Hermannsson:
í 33. gr. gildandi laga um kosningar í málefnum sveita og kaupstaða er komist svo að orði:
„Í hreppi hverjum skal kjósa einn sýslunefndarmann á manntalsþingi til 6 ára, og einn varamann til sama tíma“.
Hjer er það skýlaust tekið fram, að sýslunefndarmenn skuli ekki kjósa annarsstaðar en á manntalsþingi. En manntalsþing er ekki haldið nema einu sinni á ári. Á því ári, sem á milli manntalsþinga verður, getur komið fyrir, að bæði aðalmaður og varamaður gangi úr leik, en þó verði haldinn sýslufundur. Af ákvæðum laganna leiðir þá, að hreppur getur orðið fulltrúalaus á sýslufundi. Úr þessu á till. á þskj. 473 að bæta. Það á að halda fyrirkomulaginu og kjósa fulltrúana á manntalsþingi. En komi sú sjaldgæfa undantekning fyrir, að báðir gangi úr leik á sama tíma, þá getur þurft að grípa til þess að kjósa fulltrúa til bráðabirgða, og er gert ráð fyrir, að sú kosning gildi aðeins til næsta manntalsþings, en þá er fyrst tækifæri til að kjósa reglulega til starfans. Brtt. ætlast til, að gildandi ákvæðum sje haldið, en þessu einungis bætt inn í.
Vitanlega mætti nokkuð fyrirbyggja þetta á annan hátt, t. d. með því að hafa varafulltrúana fleiri en einn. Verða þá minni líkur til, að þetta komi fyrir. En brtt. hæstv. forseta finst mjer að því leyti óþörf, að þar er gengið út frá, að horfið verði frá þeim grundvelli laganna, að kosning fari fram á manntalsþingi, en gildi þó um lengri tíma en nauðsynlegt er. Hann ætlast til, að þessi bráðabirgðakosning gildi út kjörtímabilið. Það getur vel gengið, en það er ekki nauðsynlegt, því það má kjósa á næsta manntalsþingi án aukinnar fyrirhafnar.
Aðalatriðið fyrir mjer er það, að fyrir því verði sjeð, að það þurfi ekki að koma fyrir, að hreppur fái ekki tækifæri til að senda fulltrúa á sýslufund. Jeg býst raunar við, að slíkt komi sárasjaldan fyrir, en jeg veit þó dæmi til þess, einmitt í ár. Því er rjett að slá varnagla við því. Jeg álít, að hv. deild geri rjett í að bæta á einhvern hátt úr því, en hitt geri jeg ekki að kappsmáli, á hvern hátt það er gert.