27.04.1929
Efri deild: 55. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Frsm. (Jón Jónsson):
Jeg skal geta þess, út af þeim ummælum hv. 4. landsk., að frá mjer hefði andað kalt til till. hans, að jeg álít æskilegt að auka ræktun kaupstaðanna að verulegu leyti, en jeg sje enga þörf á sjerstakri löggjöf um það efni að svo stöddu, og þess síður rjett að taka þá grein ræktunar sjerstaklega út úr og gera henni hærra undir höfði en öðrum. Það getur vel verið, að rjett væri að stofna lánadeild í þessu skyni, en jeg hygg það tæplega tímabært enn nje nægilega undirbúið. En jeg vil gjarnan stuðla að aukinni ræktun í kauptúnum og sjávarþorpum, en hinu er jeg algerlega mótfallinn, að veita smábýlamönnum við kaupstaði forrjettindi fram yfir aðra.
Mjer þykir leitt, hve mjer virðist anda kalt til tilraunarinnar með happdrættið. Jeg get þó ekki sjeð, að slíkt ákvæði sje neitt til svívirðu, þar sem stærri þjóðirnar hafa gert þetta um alllangt skeið og með góðum árangri. Og þar sem menn bera kvíðboga fyrir því, að vaxtabrjefin seljist illa, skil jeg ekkert í, að hinir sömu menn skuli vilja kippa ákvæði 39. gr. burt, ef þau mættu verða til þess, að brjefin seldust betur.