01.05.1929
Efri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í B-deild Alþingistíðinda. (84)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Frsm. (Jón Jónsson):
Jeg skal játa það, að mjer sást yfir till. hv. þm. Snæf., enda hafði hv. þm. ekki talað fyrir sínum till. Um fyrri till. hv. þm. er það að segja, að jeg álít, að hún sje heldur til bóta, og seinni till. felur hið sama í sjer og d-liður 3. till. hv. 4. landsk., sem jeg hefi áður lýst afstöðu minni til. Þessi till. er að vísu dálítið ítarlegri en d-liðurinn, en jeg geri ekki að ágreiningsefni, hvor till. verður samþ.