13.05.1929
Efri deild: 67. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1942 í B-deild Alþingistíðinda. (862)

16. mál, fjárlög 1930

Halldór Steinsson:

Með því að hv. frsm. fjvn. hefir lýst því yfir, að hafnarlög Ólafsvíkur frá 1919 feli í sjer ábyrgðarheimild fyrir ríkisstj. á láni til hafnargerðar í Ólafsvík, og með því að hæstv. fjmrh. hefir tekið í sama streng og haldið því fram, að óþarfi væri að taka þessa heimild upp á fjárl. af þessum sökum, þá tek jeg hjer með aftur brtt. 33 á þskj. 617.