30.04.1929
Neðri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2079 í B-deild Alþingistíðinda. (918)

15. mál, laganefnd

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg þakka þeim hv. þm. í allshn., sem hafa unnið að þessu máli, fyrir afgr. þess. Jeg býst við, að brtt. þær, sem n. ber fram, sjeu margar til verulegra bóta á frv. eins og á stendur, bæði nafnbreyt. og eins það, að þetta sjeu heimildarlög, en ekki beint skipandi.

Jeg er sem sagt engu síður ánægður með frv. með breyt. hv. meiri hl. allshn. en eins og það var, þegar það var lagt fyrir þingið. Tel það sem sagt hafa batnað við meðferð n.