08.03.1930
Neðri deild: 48. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1210 í B-deild Alþingistíðinda. (1014)
5. mál, sveitabankar
Pétur Ottesen:
Út af orðum hæstv. forsrh. um það, að brtt. mín um nafnið gengi í þá átt að þrengja starfssvið félaganna vil ég leyfa mér að benda honum á, að hún hefir ekkert slíkt í sér fólgið. Ég hefi ekki heldur látið nein orð falla um, að ég teldi það æskilegt. En vegna þess, sem hæstv. ráðh. sagði um það, að sparifjárdeildir „sveitabankanna“ gætu orðið til að stöðva spariféð í sveitunum, vil ég aðeins minna á, að úti um land er nú fjöldi sparisjóða. Þótt ýmsir þeirra eigi heima í kauptúnum, eru þó allmargir, sem hafa heimili sitt í sveitum. Tillögur hæstv. ráðh. verða því varla til mikilla breytinga í þessu efni, sízt þegar það er heimilað, að þessi félög hafi heimili og varnarþing í kauptúnum og veiti lán til þeirra, sem stunda ræktun þar. Ég er allkunnugur starfsemi tveggja sparisjóða úti á landi, sem að vísu eiga heima í kauptúnum, en lána þó engu síður til sveitanna, eins og þeir eiga að gera. Hafa þeir orðið til mikils gagns fyrir bændur á sínum slóðum.
Mér finnst lánsfélaganafnið eiga betur við en „sveitabanka“-nafnið. Sé ég ekkert á móti því, að félögin starfi að einhverju leyti með sparifé, þótt þau heiti lánsfélög. Ég býst við, að hæstv. ráðh. og hv. þd. kannist við það, að viss þáttur í starfsemi hinna stærri banka er kallaður innlánsstarfsemi. Hitt, sem bent var á hér áðan, að hér gætu komið upp mörg hundruð bankastjórar 700 eða fleiri , er nú máske ekki mikið atriði. En þó má nú samt vera, að svo fari, þegar bankastjórar í kaupstöðum hafa allt að 24 þús. kr. í árslaun, að þessir smáu bankastjórar fari að teygja sig eitthvað í áttina til þessara starfsbræðra sinna í kaupstöðunum með kröfur um launagreiðslur.
Fyrri brtt. minni hefir verið vel tekið. Hv. frsm. sagði, að þetta ákvæði væri í búnaðarbankalögunum. Ég gæti því máske tekið hana aftur. En bankastjórar Búnaðarbankans óska eftir því, að þessi lög séu í sem beztu samræmi við búnaðarbankalögin. Og þar sem þetta er í samræmi við þau, þá óska ég heldur eftir því, að þetta standi líka í þessum lögum og sé því bætt inn í frv.