30.01.1930
Neðri deild: 9. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í C-deild Alþingistíðinda. (1048)

29. mál, rekstarlánafélög fyrir bátaútveg og smáiðju

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég skal aðeins geta þess í sambandi við þetta mál og næsta mál á dagskrá, að stj. hefir látið undirbúa lagafrv. um þetta efni, samkv. loforði í fyrra, og mun það frv. bráðlega verða lagt fram í þinginu. Geymi ég mér að taka til máls um þetta frv. fyrr en frv. stj. er komið fram.