30.01.1930
Neðri deild: 9. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í C-deild Alþingistíðinda. (1053)

29. mál, rekstarlánafélög fyrir bátaútveg og smáiðju

Pétur Ottesen:

Út af orðum hv. 1. þm. S.-M., um að þetta mál væri náskylt sveitabankafrv., vil ég upplýsa hv. þm. um það, að í fyrra var það mál fyrir landbn., en ekki fjhn. Ef deildin vill nú vera sjálfri sér samkvæm, á þetta mál að sjálfsögðu að fara til sjútvn.