28.03.1930
Efri deild: 63. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)

5. mál, sveitabankar

Jón Baldvinsson:

Út af aths. hv. 3. landsk. við brtt. á þskj. 358 get ég fallizt á, að orðalag brtt. sé ekki nógu skýrt. En ég hygg, að úr því mætti bæta með því að flytja seinni málsgr. 1. brtt. fram fyrir þá fyrri: Ég gæti gengið inn á þá breyt. Ég hygg líka, að meiri hl. n. meini það, að þó víxillán séu greidd upp á 6 mán. þá sé þó heimilt að veita reikningslánin til eins árs.