07.02.1930
Neðri deild: 17. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í C-deild Alþingistíðinda. (1162)
36. mál, járnbraut frá Reykjavík til Ölfusár
Magnús Torfason:
Mér er heldur þungt um mál nú, og þess vegna hafði ég ekki ætlað mér að taka til máls að þessu sinni, en það hefir verið skorað á mig að svara fyrirspurn, og skal ég þá gera það.
Ég greip fram í ræðu eins hv. þm., viðvíkjandi skýrslu Sv. Möllers. Ég hefi haft þá æru að sjá þessa skýrslu, og er þá frá því að segja, að þegar ég hafði lesið hana, lagði ég hana frá mér með þeirri hugsun: Þessi skýrsla er pöntuð. Hv. fyrirspyrjandi hefir ekki séð þessa skýrslu, en honum mun gefast kostur á því innan skamms, og býst ég við, að eftir lestur hennar muni hann komast að sömu niðurstöðu. En vilji hv. 1. þm. Skagf. leita sér frekari upplýsinga um þetta efni nú þegar, þá verð ég að biðja hann að snúa sér til vegamálastjóra ríkisins; en mér skilst af þessari skýrslu hr. Sv. Möllers, að hann hafi verið í náinni samvinnu við vegamálastjóra. Frekara finn ég ekki ástæðu til að segja um þessa fyrirspurn.
Að öðru leyti vil ég lýsa yfir því, að mér þykir gott, að þessi rannsókn á vegarstæðinu hefir farið fram; mér hefir skilizt svo, að ekki myndi von um, að byrjað yrði á neinum samgöngubótum fyrr en slík rannsókn hefir fram farið, m. ö. o., að nákvæma áætlun þurfi um það, hvað slík vegargerð muni kosta og hvort líklegt sé, að slík vegagerð geti orðið okkur eins örugg samgöngubót og járnbraut. Þess vegna hefi ég skoðað þetta sem nauðsynlegan undirbúning.
Ég bjóst við, að þessi skýrsla mundi verða tilbúin í fyrra, á síðasta þingi, en það varð ekki úr því. Síðan hefi ég verið að vonast eftir henni, bjóst við, að hún mundi verða tilbúin með haustinu, en, því miður, hún er ekki tilbúin enn. Þessi dráttur á ekki flóknara máli líkar mér illa, og þess vegna er ég mjög glaður yfir því, að við megum eiga von á þessari skýrslu nú á næstunni. Og einmitt vegna þess, að þessi skýrsla er ekki fram komin, hefi ég litið svo á, að ekki væri ástæða til að fjölyrða um málið að sinni; það yrði ekki að gagni fyrr en þessi eftirþráðu gögn væru komin.