28.03.1930
Efri deild: 63. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1301 í B-deild Alþingistíðinda. (1262)
19. mál, fræðslumálastjórn
Jón Jónsson:
Ég vil leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að málið verði tekið út af dagskrá, því að ég hefi í hyggju að bera fram brtt. við það. Ég hefi síðan dagskráin kom verið upptekinn við nefndarstörf og því ekki getað komið með brtt. nú.