16.04.1930
Efri deild: 82. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í C-deild Alþingistíðinda. (1301)

102. mál, hafnargerð á Dalvík

Frsm. 2. minni hl. (Erlingur Friðjónsson):

Ég ætla ekki að tefja tímann, en læt nægja að vísa til þeirra umr., sem hafa orðið frá minni hendi um frv. til laga um hafnargerð á Sauðárkróki og brtt. við það. Breytingin er sú sama við þetta frv. og gilda sömu rök fyrir henni eins og ég hefi fært í hinu málinu.