05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í C-deild Alþingistíðinda. (1326)

104. mál, hafnargerð á Akranesi

Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):

Ég vildi taka það fram um þessi hafnarfrv., að þar sem búið er að fella till. meiri hl. sjútvn., sé ég mér ekki fært að fylgja frv. og mun því greiða atkv. á móti þeim. Ég fylgi ekki frv. jafnvel þó að ég viðurkenni, að hafnir t. d. á Akranesi. og Sauðárkróki ættu sem fyrst að fá afgreiðslu.