05.03.1930
Neðri deild: 44. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í C-deild Alþingistíðinda. (1365)

136. mál, jarðræktarlög

Flm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég átti ekki eftir nema eina af þeim ræðum, sem ég hefi rétt til að flytja um þetta mál eftir þingsköpum. Af því ég býst við, að fleiri taki til máls um málið nú, vil ég helzt geyma þennan rétt til andsvara. Umr. var frestað síðast vegna hæstv. atvmrh., og væri því æskilegt, ef hann vildi lýsa afstöðu sinni til málsins.