01.03.1930
Neðri deild: 40. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í C-deild Alþingistíðinda. (1495)

200. mál, Verslunar- og útvegsbanki Íslands

Pétur Ottesen:

Ég hafði nú frekar búizt við, að frv. þetta gengi hér gegnum þrjár umr. í dag heldur en að það yrði tekið út af dagskrá. En svo er nú komið sem komið er um það, og vegna þess, hve lítið er liðið af venjulegum fundartíma, vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann hafi annan fund þegar að þessum loknum og taki þar fyrir einhver þeirra mörgu mála, er nú bíða afgreiðslu í hv. deild.