01.03.1930
Neðri deild: 40. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í C-deild Alþingistíðinda. (1497)

200. mál, Verslunar- og útvegsbanki Íslands

Sigurður Eggerz:

Síðan ég bað um orðið, hafa hv. flm. lýst yfir því, að þeir sætti sig við, að málið sé tekið af dagskrá, og hæstv. forseti lofað að taka það fyrir á mánudag. Hefi ég því í rauninni lítið að segja, en vil aðeins leggja áherzlu á, að það verði þá tekið fyrir fyrst mála.