14.04.1930
Neðri deild: 81. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í C-deild Alþingistíðinda. (1561)
338. mál, gelding hesta og nauta
Sveinn Ólafsson:
Ég álít ekki þörf að ræða þetta mál meira, en ég vil taka undir með hv. 1. þm. Árn. og fleirum um það, að undirbúningur þessa máls er ekki góður. Ég sé aðeins eina aðferð rétta til þess að afgreiða það, og hún er sú, að vísa því til stjórnarinnar, og geri ég það að till. minni.