28.06.1930
Sameinað þing: 13. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2480 í B-deild Alþingistíðinda. (1701)
Þinglausnir
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Eins og þingheimi og öðrum er kunnugt, fór hans hátign konungurinn héðan af Þingvelli í gærkvöldi, og var það þegar ráðið áður, þannig að hann getur ekki sjálfur slitið þingi. Hefir verið gefið út konungsbréf um þingslit, svo hljóðandi:
„Vér Christian hinn tíundi, af guðs náð konungur Íslands og Danmerkur, Vinda og Gauta, hertogi í Slésvík, Holtsetalandi, Stórmæri, Þéttmerski, Láenborg og Aldinborg,
Gerum kunnugt: Vér viljum hér með veita yður sem vorum forsætisráðherra fyrir Ísland umboð til þess í voru nafni að segja Alþingi slitið, þá er þingið hefir lokið störfum sínum nú bráðlega.
Ritað í Reykjavík 25. júní 1930.
Undir vor konunglega hönd og innsigli. Christian R.“.
Samkvæmt þessu umboði lýsi ég yfir, að Alþingi Íslendinga, sem hér var nú háð þúsund árum eftir að hið fyrsta Alþingi var sett, er slitið.
Stóð þá upp Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf., og mælti:
„Lengi lifi konungur vor, Kristján hinn tíundi!“
Tók þingheimur undir þau orð með níföldu húrrahrópi.
Var síðan af þingi gengið.