25.01.1930
Neðri deild: 5. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (1880)

13. mál, Skeiðaáveitan o.fl.

Pétur Ottesen:

Mér virðist sem þetta mál heyri undir landbn., því að hún þarf að athuga, hvernig tekizt hefir til með þetta mál. Hitt er að vísu rétt, að hér er um útgjöld að ræða, en það hefir verið vani hér á þingi, að þegar ýmsar n. hafa fjallað um slík mál, hafa þær borið fjárhagsatriði þeirra undir fjvn., og nú er engin ástæða til, að þessu verði breytt.