25.02.1930
Neðri deild: 36. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1452 í B-deild Alþingistíðinda. (1923)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Ég vil benda á það, að flm. allra brtt. eru fjarstaddir. Í öðru lagi hefir landbn. ekki gefizt tími til að athuga rækilega þær brtt., sem komið hafa fram við frv. Þess vegna verð ég að æskja þess, að málið verði tekið út af dagskrá. (Forsrh.: Engin ástæða til þess). Til þess er því meiri ástæða, sem brtt. eru mjög margar.