10.03.1930
Neðri deild: 49. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1488 í B-deild Alþingistíðinda. (1957)

7. mál, refaveiðar og refarækt

Jón Sigurðsson:

Ég held, að þessi atkvgr. sé ekki eins flókin og menn halda. Ég vil t. d. benda á, að margar af brtt. hv. þm. Borgf. lúta að því sama, svo ef hv. þd. t. d. hafnaði þeirri fyrstu, væru eiginlega margar hinna þar með fallnar. Síðustu brtt. hans eru aftur á móti sjálfstæðar, svo að um þær þarf að greiða atkv. sérstaklega.