10.04.1930
Neðri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1507 í B-deild Alþingistíðinda. (1983)
7. mál, refaveiðar og refarækt
Pétur Ottesen:
Ég verð að segja, að ef landbn. hefði viljað, þá hefði hún getað verið búin að athuga þetta mál, því að það er langt síðan það kom frá Ed. Ég vil skora á hæstv. forseta að stilla svo til, að málið verði ekki tafið, svo að ekki fari svo, að það dagi uppi. Breyt. þær, sem gerðar voru í Ed., voru ekki mikilvægar, svo að þeirra vegna ætti ekki að þurfa að fresta málinu.