14.02.1930
Neðri deild: 25. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1638 í B-deild Alþingistíðinda. (2170)

116. mál, ábyrgð rekstrarláns til útgerðar

Halldór Stefánsson:

Ég vil einungis þakka hæstv. forsrh. fyrir glögg og greinargóð svör við fyrirspurn minni áðan. Fyrir mér vakti það eitt, að fá upplýsingar um, hvort og hvernig hæstv. stj. hefði hugsað fyrir því að sinna rekstrarlánaþörf Seyðisfjarðar og Austfjarða yfirleitt. Ég tel þetta fyrirkomulag og úrlausn, sem hæstv. ráðh. benti á, vera eftir atvikum viðunandi, og hefi því ekki ástæðu til að segja meira að svo stöddu.