14.02.1930
Neðri deild: 25. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1644 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)

116. mál, ábyrgð rekstrarláns til útgerðar

Magnús Jónsson:

Það getur ómögulega skipt neinu fyrir málið, hvort fundurinn er settur nú þegar eða ekki fyrr en kl. 5½. Og jafnvel þótt ekki sé um annað að ræða en að vita um vilja eins flokks, þá er ekki hægt að segja um það án þess að veita hlé til að athuga það. Ég vildi þess vegna óska eftir því, að fundinum yrði frestað án nokkurra loforða.