12.02.1930
Efri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1678 í B-deild Alþingistíðinda. (2267)

86. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (GÓ):

Það sýnist óþarfi að vísa þessu frv. til sömu n. og það er frá komið, því fremur sem sá af nm., sem ekki er flm., tjáir sig því ekki mótfallinn. En ef það þykir af formsástæðum betur við eiga, þá get ég gjarnan látið svo vera.