27.02.1930
Neðri deild: 38. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1683 í B-deild Alþingistíðinda. (2289)

86. mál, kosningar til Alþingis

Magnús Guðmundsson:

Mér líkar það vel, að þessi brtt. er komin fram frá hæstv. forsrh., því að þá kemur það til atkv. hér, hvor dagurinn skuli valinn.

Ég skoraði á hv. 2. þm. Árn. að koma fram með þessa brtt., en hann færðist undan og kvaðst treysta svo stj., að hún myndi finna þá einu réttu leið. Hv. þm. (MT) fylgir stj. svo fast, að hann er meiri fylgismaður hennar en stj. sjálf.