10.02.1930
Neðri deild: 20. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1782 í B-deild Alþingistíðinda. (2421)

68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Hannes Jónsson:

Út af því, sem hv. þm. Dal. sagði um það, að bankastjórum Íslandsbanka hefði engin tilmæli borizt um að gefa skýrslu um hag bankans, þá vil ég upplýsa um það, að skömmu eftir að form. bankan., hv. 1. þm. S.-M., hafði beðið hæstv. forsrh. að útvega slíka skýrslu, þá hitti ég hv. þm. Dal. einmitt hér í deildarsalnum og spurði hann um, hvort skýrsla bankastjóranna færi ekki að koma. Hv. þm. brást dálítið ókunnuglega við, en lét þó þau orð falla, að sjálfsagt væri, að slík skýrsla kæmi. En þó hefir ekkert bólað á henni enn.