09.04.1930
Efri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (244)

1. mál, fjárlög 1931

Jón Baldvinsson:

Ég álít, að bera skuli upp hvert nafn í næstu brtt. sér í lagi. Þar er lagt til að fella niður fimm liði, og getur ekkert verið því til fyrirstöðu, að hver liður sé borinn upp fyrir sig.