04.03.1930
Efri deild: 41. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1895 í B-deild Alþingistíðinda. (2494)

68. mál, Útvegsbanki Íslands h/f

Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):

Ég vil aðeins lýsa því yfir, að ég er samþykkur þeim uppástungum um meðferð málsins, sem hæstv. fjmrh. hefir borið fram, og finn ekki að mínu leyti ástæðu til þess að fara út í umr. um einstök atriði þess, fyrr en þá að lokinni athugun nefndarinnar.