12.04.1930
Efri deild: 76. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1027 í B-deild Alþingistíðinda. (259)

1. mál, fjárlög 1931

Forseti (GÓ):

Útbýtt hefir verið brtt. á þskj. 503 og 511, og ennfremur hafa mér borizt þrjár skriflegar brtt. Verður að leita afbrigða frá þingsköpum til þess að þessar brtt. megi koma til umr. og atkvgr.