12.04.1930
Neðri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2131 í B-deild Alþingistíðinda. (2855)

34. mál, landhelgisgæsla

Forseti (BSv):

Ég vil aðeins árétta það, sem hv. þm. Borgf. tók fram, að hér er um 2. umr. að ræða, og er því hægt að bera fram brtt. við 3. umr. Og þar sem meiri hl. sjútvn. er mótfallinn því að taka málið af dagskrá, þá get ég ekki orðið við ósk hv. 1. þm. S.-M., og er málið þá til umr.