15.04.1930
Neðri deild: 83. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1065 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

1. mál, fjárlög 1931

Forseti (BSv):

Eins og menn hljóta að skilja, þá er ómögulegt að koma fram öllum stórmálum, sem fyrir liggja á þessu þingi. Hinsvegar hefi ég reynt að verða við óskum hv. þm. Ísaf. eftir megni, enda hefir eitt mál af þremur þegar verið afgr., en hin hefi ég tekið oft á dagskrá, og er ég því ekki ásökunarverður frá hans hendi. Annars gengur þetta þóf ekki lengur, og er bezt að láta atkv. skera úr.