15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2177 í B-deild Alþingistíðinda. (2901)

132. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Forseti (GÓ):

Þetta mál var til 2. umr. hér í gær, og verður því að veita afbrigði frá þingsköpum til þess að 3. umr. megi fara fram nú. En með því að svo stendur á um nokkur önnur mál á dagskránni, sem sé 3., 5., 6., 8., 9. og 10. mál, að ýmist er of skammt 1iðið frá 2. umr. þeirra eða frá útbýtingu, mun ég jafnframt leita afbrigða fyrir þau.