15.04.1930
Efri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2180 í B-deild Alþingistíðinda. (2911)

132. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Jón Baldvinsson:

Þetta var ekkert svar frá hæstv. forseta við því, sem ég spurði um. Þess eru mörg dæmi, að mál hafa fallið á því síðustu þingdagana, að neitað hefir verið um afbrigði: Hér er um að ræða svo mikilvægt atriði, að það fer eftir undirtektum hæstv. stj. undir málaleitan okkar hv. þm. Snæf., hvort við veitum afbrigði eða ekki.