16.04.1930
Neðri deild: 84. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í B-deild Alþingistíðinda. (301)
1. mál, fjárlög 1931
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það voru aðeins örfá orð til hv. 2. þm. Rang. Hann sagði, að stj. hefði lofað samgmn. skýrslu um járnbrautarmálið fyrir þinglok. Þetta er rétt, og hefir verið lagt fyrir vegamálastjóra. Ég innti eftir því síðar við hann, hvort skýrslan væri til, en nú hefir farið svo, að skýrslan er enn ekki fullbúin. Ég er sammála samgmn. um það, að ekki er rétt að afgreiða þetta mál fyrr en skýrslan kemur, og mun ég þá gera upp við mig, hvora leiðina ég telji að eigi að fara.