16.04.1930
Neðri deild: 84. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (305)
1. mál, fjárlög 1931
Benedikt Sveinsson:
Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. fjmrh., að hann hefir tekið í mál Páls Torfasonar á þann hátt, sem hv. þdm. hafa nú heyrt. Er það í fullu samræmi við það, sem hæstv. fjmrh. hefir áður sagt um þetta mál. Páll Torfason hefir orðið að sæta miklum hrakningum um að fá rétting mála sinna. Er varla of sterkt að orði kveðið, þótt sagt sé, að hann hafi orðið fyrir einskonar fjárkúgun eða „pengeafpresning“, er hann fékk síðustu 10 þús. kr. greiddar. Vil ég því mega vænta þess, að hæstv. ráðh. sem drenglundaður maður setji eigi frekari skilyrði um greiðslu fjárins en þessi maður getur sætt sig við. En ef hæstv. ráðh. er einhver þökk í þeirri yfirlýsingu, get ég vel fallizt á að flytja eigi frekari till. um þetta mál.