27.03.1930
Neðri deild: 64. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2314 í B-deild Alþingistíðinda. (3094)

54. mál, lögskráning sjómanna

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Við þetta frv., sem fyrir liggur, eru fram komnar brtt., sem sjútvn. hefir ekki átt kost á að kynna sér. Ég verð að segja, að mér hefir ekki gefizt tækifæri til að kynna mér þær né meðflm. mínum. Þessum brtt. hefir ekki verið útbýtt enn hér í deildinni, og þó eru þær komnar í prentun fyrir nokkru. Þess vegna vildi ég helzt, að þessar brtt. yrðu ekki ræddar fyrri en við 3. umr. málsins. Ég óska því, að umr. verði litlar og að málinu verði vísað til 3. umr.