16.04.1930
Neðri deild: 84. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í B-deild Alþingistíðinda. (318)
1. mál, fjárlög 1931
Gunnar Sigurðsson:
Út af þeim ummælum hv. 1. þm. Skagf., að ég hefði átt að koma með sérstakt nál. í járnbrautarmálinu, vil ég lýsa yfir því, að ég gerði það ekki, af því að ég lít svo á, að það hefði getað orðið til þess að skaða málið. Það var alltaf búizt við skýrslu í málinu frá vegamálastjóra, og beðið eftir, að hún kæmi, því að meðnefndarmenn mínir voru ófúsir til að taka afstöðu í málinu, fyrr en þeir hefðu séð þessa skýrslu. En það skal ekki standa á mér að koma með nál. á næsta þingi, þó svo að ég standi einn uppi.