07.04.1930
Neðri deild: 73. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (3240)

213. mál, skurðgröfur

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Ég skal geta þess fyrir hönd landbn., að hún mun styðja þessa till. Jafnframt vil ég geta þess, að hún ber fram nokkrar smávægilegar brtt. við frv., sem aðallega eru til þess að færa það til betra máls. Ég þykist ekki þurfa að gera grein fyrir þessum brtt. n., sem eru á þskj. 425; þær eru svo augljósar.